29.7.2021 | 12:12
Ísland er appelsínugult.
Það var heldur mikil fljótfærni hjá staðgengli sóttvarnalæknis að gefa það út í gær 28/7 að Ísland yrði líklega orðið "rautt" í dag 29/7 en hún gleymdi að geta þess þó svo að smit séu komin yfir 200/1000 íbúa er einnig miðað við smitstuðulinn hafi náð amk 4%. Stuðullinn hefur farið vaxandi hér á undanförnum dögum og hefur verið um 2% s.l. daga þ.e. hlutfall Covid-smitaðra m.v. framkæmdar sýnatökur. Ísland er því talsvert langt frá þessari viðmiðun sem betur fer. Að mínu mati er þetta óþarfa hræðsluáróður sem fælir margan ferðamanninn frá því að gera sín ferðaplön á næstunni. Vera má að Ísland komist á rauða lista eftir 1-2 vikur en það var aldrei að fara gerast í dag enda er miðað við tölfræði liðinnar viku þegar ECDC gefur út sínar vikulegu tölur og viðmið.
Ísland er appelsínugult | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.